Mikill meirihluti hlynntur aukinni skattalækkun láglaunafólks

Ný skoðanakönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Alþýðusamband Íslands leiðir í ljós að 83 prósent Íslendinga eru hlynntir því að launafólk með heildartekjur undir 500.000 kr. á mánuði fyrir skatt fái meiri skattalækkun en aðrir. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá ASÍ.

„Athygli vekur að stuðningur við slíka skattkerfisbreytingu er mikill í öllum aldurs- og tekjuhópum þó vissulega sé hann mestur hjá þeim tekjulægstu,“ segir í tilkynningunni.

ASÍ segir niðurstöðuna rímar vel við þær hugmyndir um skattkerfisbreytingar sem sambandið kynnti í lok janúar. „Markmið þeirra tillagna var að létta byrðum af fólki með lágar- og millitekjur, auka jafnrétti og koma á sanngjarnri skattheimtu. Þegar ríkisstjórnin kynnti sínar skattalækkunar hugmyndir nokkrum vikum seinna kom í ljós að sama skattalækkun átti að ganga upp allan tekjustigann, þ.e. það skipti ekki máli hvort einstaklingurinn væri með 300 þús kr. eða 2,3 milljónir í mánaðartekjur, allir fengju það sama,“ kemur fram í tilkynningunni.

ASÍ vísar til rannsóknar hagdeildar ASÍ frá 2017 þar sem niðurstaðan var sú að skattbyrði hinna tekjulægstu hafi hækkað mest á undanförnum árum og að dregið hafi úr jöfnunarhlutverki skattkerfisins. „Munar þar mestu að skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun og vaxta- og barnabótakerfin hafa