Miðflokkurinn og píratar bæta við sig

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur minnkaði um tæp tvö prósentustig frá síðustu fylgismælingu MMR og mælist nú 21,7%. Þá bæta Píratar við sig tæplega einu og hálfu prósentustigi meira en flokkurinn mældist með í síðustu könnun. Eru Píratar því næst stærsti flokkurinn á þingi. Þá minnkaði fylgi Framsóknarflokksins um tæplega tvö og hálft prósentustig en fylgi Miðflokksins hækkaði um rúm tvö prósentustig frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst um tæp fimm prósentustig og mældist nú 46,5% en var 41,8% í síðustu mælingu.

Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,9% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,4% og mældist 11,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 10,2% og mældist 8,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,0% og mældist 9,4% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,7% og mældist 11,1% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,4% og mældist 4,7% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,5% og mældist 2,5% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,2% samanlagt.