Miðflokkurinn mælist með 10,8% fylgi í nýrri könnun MMR en var með 11,8% í síðustu könnun. Málþóf Miðflokksins er ekki að styrkja flokkinn eins og sumir álitsgjafar töldu að myndi gerast. Þá taka Píratar mikið stökk en þeir mælast með 14% en voru með 9,8% í síðustu könnun.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins stóð nærri óbreytt milli mælinga í fyrri og seinni hluta maímánaðar og mælist nú 21,5%. Fylgi Viðreisnar (8,3%) og Sósíalistaflokks Íslands (3,4%) stóð sömuleiðis óbreytt milli mælinga maímánaðar.
Fylgi annarra flokka sveiflaðist meira. Vinstri græn mældust þannig með 14,1% fylgi undir lok mánaðarins, sem er tæp 2 prósentustiga aukning því í fyrri hluta mánaðarins. Fylgi Samfylkingarinnar dalaði um tæpt eitt og hálft prósentustig frá því í fyrri hluta maí.