Viðskiptastríð hófst á milli Bandaríkjanna og Kína í nótt þegar refsitollar að upphæð $35 milljarða bandaríkjadala á ákveðnar kínverskar vörur tóku gildi.
Um er 25 prósenta innflutningstolla á rafmagns- og hátæknivörur frá Kína. Kínverjar segjast ekki eiga annarra kosta völ en að grípa til gagnaðgerða.
Vöruskiptajöfnuður Bandaríkjanna gagnvart Kína var neikvæður um rúmlega 375 milljarða bandaríkjadala í fyrra, og hefur hann aldrei verið hærri.
Kínversk stjórnvöld segja Bandaríkin búin að hleypa af stað mesta viðskiptastríði sögunnar.