Mesta sorgarsaga síðari tíma stjórnmála

\"Saga Bjartrar framtíðar er einhver mesta sorgarsaga síðari tíma stjórnmála. Eftir flokkinn liggur ekkert. Hans verður ekki minnst fyrir neitt nema hugsanlega þingmál um að breyta klukkunni og fyrir að springa á limminu í ríkisstjórn á nýju hraðameti í stjórnmálasögunni.\"

Svona skrifar Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar á fésbók sína - og er um eins konar minningargrein um látinn stjórnmálaflokk að ræða.

Og Össur er hugsi: \"Í forystu hans voru þó efnisfólk í upphafi. Guðmundur Steingrímsson var eitthvert mesta efni sem kom fram í pólitíkinni á síðustu árum. Jón Gnarr gaf flokknum í vöggugjöf aðild að sterkum meirihluta í borginni. En Björt framtíð var hins vegar gjörsneydd málefnum,\" skrifar Össur og fer svo á flug: \"Síðari tíma forysta hennar virtist einkum berjast fyrir áskrift forystumanna sinna að góðum launum fyrir þægilega innivinnu. Svo fattaði pöpullinn feikið, fylgið hvarf, og taugakerfið brast einsog frægt varð. Flokkurinn logaði skjótt stafna á milli í illvígum átökum. Jón Gnarr, Guðmundur Steingrímsson, Róbert Marshall og Heiða Kristín voru hrakin í burtu. Eftir sat „accidental leader“ sem hvarf einsog íkorni inn í myrkviði ráðuneytis og hefur ekki spurst til síðan. Og svo auðvitað Björt Ólafsdóttir sem í morgun lýsti opinberlega löngu liðnu andláti flokksins. Sjálf tók hún sér ógleymanlegan sess í þingsögunni þegar hún notaði sali Alþingis til að láta taka af sér tískumyndir til að auglýsa prýðilega kjólaframleiðslu vinkonu sinnar. Þegar bent var á að það væri brot á siðareglum Alþingis trúði hún Facebook fyrir að svona gagnrýni væri dæmigerð fyrir viðbrögð feðraveldisins. Færslan olli uppnámi innan flokks og utan og var fjarlægð eftir hádegi, og nú er Björt framtíð búin að fjarlægja sjálfa sig af sviðinu. – Lítið var en lokið er,\" skrifar hinn roskni pólitíkus.