Stærsti banki heims fjárfesti í meniga

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga sem vann fyrst að gerð rafræns heimilisbókhalds, vinnur nú með 40 bönkum í 23 löndum víðs vegar um heiminn, til dæmis í Kanada, Suður Afríku og Singapúr svo dæmi séu tekin. Lúðvíksson stofnandi Meniga og framkvæmdastjóri segir hefðbundna bankastarfsemi breytast hratt.

Stærsti banki heims fjárfesti í Meniga

Í sumar fjárfesti Unicredit, einn stærsti banki heims í íslenska fyrirtækinu fyrir rúmlega þrjár milljónir evra, eða um 382 milljónum íslenskra króna. Bankinn hefur hafið innleiðingu á snjallsíma- og netbankalausnum Meniga. Samstarfið var tilkynnt á Money 20/20, stærstu fjártækni ráðstefnu Evrópu í sumar og er samningurinn sá stærsti sinnar tegundar sem gerður hefur verið í Evrópu, segja forsvarsmenn Meniga. Þá fjárfesti Íslands­banki nýlega fyr­ir 3 millj­ón­ir evra eða um 410 millj­ón­um króna í fyrirtækinu.

Rafrænn ráðgjafi í fjármálum

„Netbankar þurfa að vera staðir þar sem hægt er að stunda meira en bara bankaviðskipti og verða meira eins og rafrænn ráðgjafi í fjármálum“, segir Georg í samtali við Jón G. Hauksson á Hringbraut. Meniga hefur undanfarið þróast í að vera hjálp fyrir stóra banka í að búa til næstu kynslóð sinna netbanka.

Núna séu bankar að átta sig á því að þeir þurfa ekki að eiga allar vörur á sínum efnhagsreikningi og geta farið í samstarf við fjártæknifyrirtæki og boðið upp á ákveðnar vörur og afslætti.

„Línurnar eru að verða óskýrari á milli hvað er banki og hvað er ekki banki“, segir Georg.