Meirihluti íbúa í Árborg er hlynntur tillögu að breytingu á miðbæjarskipulagi Selfoss. Niðurstaðan er bindandi fyrir bæjarstjórn. Á vef rúv er fjallað ítarlega um málið og framhald þess og einnig að ábyrgðarmaður undirskriftasöfnunarinnar sem knúði fram íbúakosninguna telur að framkvæmd kosninganna hafi verið annmörkum háð. Forseti bæjarstjórnar vísar því á bug.
Meira en helmingur kjósenda greiddi atkvæði í íbúakosningu í gær. 59 prósent þeirra sem kusu samþykktu aðalskipulag miðbæjarins. Rúmlega 39 prósent voru því andvígir. Að auki var kosið um deiliskipulag miðbæjarins , nokkuð færri voru fylgjandi því eða 56 prósent.