#meetoo-byltingin hefur þjappað konum saman og afhjúpað helstu ókosti feðraveldisins, en fylgifiskurinn er sá að nú eru karlmenn reknir fyrir að viðra vondar skoðanir sínar og þar af leiðandi er tjáningarfrelsið í ákveðinni hættu.
Þetta er tónninn í Harmageddon-bræðrunum Frosta Logasyni og Mána Péturssyni í Ritstjórunum í kvöld þar sem þeir ræða frjálslega um kosti og galla #meetoo-byltingarinnar, en þeir segja að það gangi eiginlega ekki að reka menn fyrir að tjá sig almennt um hitamálin í samfélaginu; það verði og eigi að vera fyrir böðulskapnum á samfélagsmiðlunum þar sem alltof auðvelt sé að taka menn af lífi fyrir klaufaskap og heimsku.
Óhætt er að segja að þeir kappar fari mikinn í þættinum og láti ekkert mannlegt sér óviðkomandi í umræðu um braggablúsinn, aukna róttækni innan verkalýðshreyfingarinnar, dónaskap Alþingis gagnvart almennu launafólki, kannabisfrelsi á Íslandi og ungu mennina á Íslandi sem eru hættir að fara að heiman.
Það er boðið upp á sannkallaða rússíbanareið í Ritstjórnum í kvöld, en þeir eru nú partur af frétta- og umræðuþættinum 21 á þriðjudagskvöldum.