Matthías með hjartað á réttum stað: talar á þýsku um ömmu sína - „við elskum hana mikið“

Í þýska miðlinum Bild er viðtal við Mathías annars söngvara Hatara. Í frétt Bild sem DV vekur athygli á má sjá Matthías tala á góðri þýsku um ömmu sína. Amma hans, Elanóra er þýsk og 83 ára gömul.

Í fréttinni segir að meðlimir í sveit Hatara séu mjúkir undir niðri og þá sérstaklega þegar hann talar um ömmu sína. Matthías segir meðal annars í viðtalinu

 „Hún er 83 ára gömul og við elskum hana mikið. Amma er með hjartað á réttum stað og gerir líka bestu „Bratwurst“ (steikarpylus) sem fyrirfinnst á Íslandi.“

 Myndbandið má sjá hér.