Matvælastofnun hefur, í samvinnu við Lyfjastofnun, ákveðið að kæra vef með íslensku léni, Roidstop.is, til lögreglu og farið fram á að honum verði lokað. Á vefnum eru auglýst til sölu bæði ólögleg fæðubótarefni og lyf. MAST varar því við viðskiptum við vefinn og neyslu þeirra fæðubótarefna og lyfja sem vefurinn segist selja.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá MAST.
Á síðunni eru til sölu hættuleg efni eins og DNP og Nootropics. DNP er mjög eitrað og ætti aldrei að neyta vegna þeirra alvarlegu aukaverkana sem því fylgja. Sala á fæðubótarefnum/matvælum sem innihalda DNP er ólögleg skv. matvælalögum. Á síðasta ári féll dómur í Bretlandi vegna dauðsfalls ungrar stúlku sem hafði neytt DNP. Sölumaðurinn var dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi og fyrir að selja hættulegt efni til manneldis, eins og MAST greindi áður frá.
Nootropics (tianeptine) eru efni sem sögð eru örva heilastarfsemi og eru algeng í netsölu erlendis frá. Þau innihalda í sumum tilvikum lyfjavirk efni sem geta verið hættuleg heilsu ef þau eru notuð án samráðs við lækni. Tianeptine er ekki með markaðsleyfi á Íslandi og því engin lyf til sölu á Íslandi sem innihalda efnið. Grunur leikur á um að nýlegt andlát einstaklings á Íslandi megi rekja til inntöku á Nootropics (tianeptine), sem MAST hefur áður greint frá.
Matvælastofnun barst ábending um vefinn í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður (RASFF). Rétthafi léns er skráður í Mið-Ameríku en vefleit gefur til kynna starfsemi í Ástralíu.