Á fundi forsætisnefndar borgarstjórnar Reykjavíkur í dag var lagt fram minnisblað skrifstofu borgarstjórnar sem Helga Björk Laxdal skrifstofustjóri undirritaði um framlagningu framboðslista við kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum borgarinnar.
Á fyrsta fundi borgarstjórnar sem fram fór þann 19. júní síðastliðinn fór fram umræða um vinnulag við framlag framboðslista.
Í ræðu Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks við umræðu um tillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna um stofnun umhverfis- og heilbrigðisráðs hélt borgafulltrúinn því fram að framlagning sameiginlegs lista Sjálfstæðisflokksins, Sósíalistaflokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins í þau ráð, nefndir og stjórnir sem voru á dagskrá borgarstjórnar væri trúnaðarmál. Listinn innihéldi trúnaðarupplýsingar sem aðrir borgarfulltrúar ættu ekki að hafa aðgang að fyrir fund borgarstjórnar.
Nánar á ruv.is
http://www.ruv.is/frett/asakanir-um-trunaradarbrest-brot-a-sidareglum