Mark Zuckerberg, stofnandi og aðaleigandi Facebook, tjáði sig loksins í gær um hneykslið kringum óleyfilega notkun Cambridge Analytica á persónuupplýsingum tugmilljóna Facebook-notenda.
Zuckerberg viðurkenndi í viðtali við CNN í gær að Facebook hafi gert mistök og hét því að fyrirtækið myndi taka á vandanum.
„Við berum ábyrgð á því að persónuupplýsingar á Facebook séu tryggar. Ef við getum ekki ábyrgst það þá eigum við ekki skilið að fólk noti þjónustu okkar,\" sagði Zuckerberg.
Hann sagði að trúnaðarbrestur hefði orðið milli Facebook og smáforritahönnuðarins sem lét Cambridge Analytica í té gögnin. Zuckerberg sagði að fyrirtækið færi nú í saumana á því hvernig farið hefur verið með persónuupplýsingar í þeim þúsundum smáforrita sem tengjast Facebook. Hann segir þurfa að sjá til þess að þau forrit færi í einu og öllu að persónuverndarreglum. Eins þurfi að takmarka hvernig öppin safni upplýsingum af Facaebook.
Gagnrýnendur eru ekki fyllilega sannfærðir um að Zuckerberg hafi náð að svara fyrir stöðuna með nægilega trúverðugum hætti. Yfirvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi og hjá ESB eru með málið til rannsóknar á ýmsum stigum og kallað hefur verið eftir því að Facebook-forstjórinn sitji fyrir svörum þingnefnda beggja vegna Atlantshafsins.