Kosningastefnumál flokkanna eru margvísleg. Á Þjóðbraut á mili 20 og 22 í kvöld verður tæpt á nokkrum þeirra í samtölum við hver og einn formælanda þeirra 7 flokka sem mælast með fylgi sem veitir þeim brautargengi á Alþingi.
Rætt er við Óttarr Proppé, Björt Framtíð, Sigurð Inga Jóhannsson, Benedikt Jóhannesson, Viðreisn, Sigríður Andersen, Sjálfstæðisflokki, Birgittu Jónsdóttur, Pírata, Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, Samfylkingunni og loks Katrínu Jakobsdóttur, Vinstri grænum.
Rætt var um skattastefnu allra flokka, svo sem tekjuskattinn, virðisaukaskatt og gjöld á sjávarútveginn en einnig málefni eins og stjórnarskrána, afstöðu flokkanna á þingi til búvörusamningsins, gjaldmiðlamál og umdeildar vinnuhefðir á Alþingi.