Man öll framleiðslunúmerin

Hljómsveitin MEIK treður upp sem KISS á morgun, föstudag. Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari Skálmaldar, alvitur um glamrokksveitina fornu kemur á Þjóðbraut til Lindu Blöndal í kvöld, fimmtudaginn 22.feb. Þráinn á stærsta plötusafn KISS á Íslandi og þekkir framleiðslunúmer platnanna líka. MEIK kemur fram með Magna Ásgeirssyni sem söngvara fram á Hard Rock í Reykjavík.