Maður handtekinn í bílakjallara alþingis - sprautaði úr brunaslöngu á þingvörð

Um fjögurleytið í dag óskuðu þingverðir á Alþingi eftir aðstoð lögreglu vegna manns í annarlegu ástandi í bílakjallara þinghússins. Var maðurinn að sprauta úr brunaslöngu. Þegar þingverðir höfðu afskipti af manninum og báðu hann um að yfirgefa bílakjallarann svaraði hann með því sprauta úr slöngunni á þingverðina. Vegna hegðunar og ástands var maðurinn handtekinn og vistaður í fangageymslu.