Lögreglu tilkynnt um þrjú andlát á suðurlandi

Karlmaður sem fannst látinn við Sprengisandsleið norðan Vatnsfells s.l. föstudag var tékkneskur, fæddur 1975. Hann var einn á ferð á hjóli sínu og var aðstandendum hans tilkynnt um málið með aðstoð ræðismanns Tékklands sama dag.   Krufning er áætluð á morgun en eins og fram hefur komið eru ekki vísbendingar um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað. Maðurinn hafði farið á hjóli sínu víða um Vestur- og Norðurland ásamt þekktum hálendisleiðum og var á leið úr Öskju um Sprengisand í Landmannalaugar.

Þá segir einnig í tilkynningu frá lögreglu:

„Tvö önnur andlát voru tilkynnt til lögreglunnar í vikunni og eru þau rannsökuð eins og skylt er þegar andlát verður utan sjúkrastofnunar. Þá fer að jafnaði fram krufning á líki hins látna nema unnt sé að ákvarða dánarorsök með óyggjandi hætti af ummerkjum á vettvangi og sjúkrasaga viðkomandi sé þess eðlis að krufning sé óþörf.  

Á þriðja tug krufninga hafa verið gerðar það sem af er ári skv. beiðni embættisins. Að jafnaði eru það aðstandendur sem gefa leyfi sitt fyrir því að krufning fari fram.

Mörgum finnst, við fyrstu skoðun, óþægileg tilhugsun að það þurfi að fara fram krufning en hins vegar reynist mörgum mun betra að fá þær upplýsingar sem krufningin gefur þar sem að slíkt auðveldar úrvinnslu málsins fyrir aðstandendur því þá er vitað með vissu hvað hafi í raun gerst.“