Um sex leitið í morgun var ökumaður stöðvaður á ótryggðri bifreið í annað skiptið í nótt. Lögreglan afgreiddi málið á vettvangi.
Snemma í morgun var óskað eftir aðstoð lögreglu að bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi vegna sjúklings sem var með ónæði. Sá hafði upp alls kyns ásakanir á heilbrigðisstarfsfólk. Viðkomandi fór eftir samtal við lögreglu.
Í kringum átta leitið fór lögregla í verslun í Reykjavík til þess að aðstoða starfsmann sem ýtt hafði á neyðarhnapp. Þegar lögreglan kom á staðinn hafði aðilinn sem varð til þess að starfsmaður ýtti á hnappinn farinn.
Tilkynnt var um innbrot í vinnuskúr í austurborginni klukkan hálf níu í morgun og um hálf tíu leitið var einnig tilkynnt um þjófnað á verkfærum á vinnusvæði í Reykjavík.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í Breiðholti við að vísa hústökufólki úr íbúð.
Þá var tilkynnt um umferðarslys í Hálsahverfi í Reykjavík. Lögreglan og sjúkralið fór á vettvang en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.