Lögreglan mun ekki sekta vegna nagladekkja: „förum varlega og komum heil heim“

Vegna margra fyrirspurna er gott að taka fram að Lögreglan mun ekki sekta vegna notkunar nagladekkja enda komin vetrarfærð víða á landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þá hefur lögreglan á Norðurlandi Eystra sent frá sér svipað tilkynningu:

Vegna fjölda fyrirspurna þá erum við ekki að fara sekta fyrir nagladekk þó að 1 nóvember sé ekki runnin upp. Viljum hvetja fólk til þess að fara varlega í umferðinni núna sem og aðra daga.

Förum varlega og komum heil heim.