Lögreglan leitar manns vegna rannsóknar - þekkir þú manninn?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manni vegna máls sem hún hefur til rannsóknar og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þótt myndin sé óskýr er talið að maðurinn sé klæddur í svarta, rennda íþróttapeysu (hvítan bol innan undir), svartar gallabuxur, strigaskó og sé með eyrnarlokk í hægra eyra.