Lögmaður: daniels var hótað líkamlega

Klámmyndaleikkonan Stormy Daniels ætlar að sanna að henni hafi verið „likamlegalega hótað svo hún þegði“ um samband hennar og Trump í viðtali í þættinum 60 Minutes, sem sýnt verður á CBS 25. mars n.k.

Lögmaður hennar, Michael Avenatti, sagði í viðtölum á CNN og MSNBC í dag að það væri staðreynd að henni hefði verið hótað líkamlega. Hann sagðist viss um að áhorfendur myndu sannfærast um að það sem hún segði um sína hlið á málinu sé trúverðugt. „Ég er ekki að gefa neitt í skyn, þetta er staðreynd,“ sagði Avenatti og að Daniels gæti farið yfir það mjög nákvæmlega í smáatriðum hvað gerðist.