„Ég hef alltaf átt dýr. Býsna marga ketti og einu sinni átti ég meira að segja hund. Ég hef þá kenningu að gæludýr geri fólk betra og jafnvel mest óþolandi fólk hefur fengið prik í minni bók ef það á gæludýr. Sérstaklega ketti.“
Þannig hefst pistill eftir Loga Bergmann sem birtur er í Morgunblaðinu. Logi og kona hans, Svanhildur Hólm Valsdóttir, eru í öngum sínum vegna þess að högninn þeirra, Litlikisi sem er tæplega sex ára, er týndur. Hjónin höfðu áður auglýst eftir honum á samfélagsmiðlum. Þar sagði:
„Hann hefur ekki farið einsamall lengra en út á ruslatunnurnar bak við hús síðan hann var fimm mánaða. Það sem einkennir hann, fyrir utan litinn, er óvenjulega grannt skott.“
Þá báðu þau Vesturbæinga í nágrenni Melhagans að hafa augun hjá sér, með því kíkja í geymslur og bílskúra með von um að Litlikisi finnist.
Í pistlinum segir Logi: Þeir eru sérstakir. Stundum glaðir og gæfir en stundum sérlundaðir og félagsfælnir. Alveg eins og fólk. Það er sennilega það sem er skemmtilegast við þá. Þeir hafa sinn sérstaka karakter. Litlikisi er þannig. Við fengum hann óvart, eftir að dætur okkar ráfuðu inní íbúð á Dalvík fyrir sex árum og gengu þar inná læðu með kettlinga sem hún hafði gotið nokkrum dögum fyrr. Þær féllu strax fyrir þeim eina ljósa í hópnum og við sömdum um að við myndum fá hann þegar hann væri tilbúinn. Svo kom hann. Pínulítill og úfinn.“
Litlikisi hefur týnst áður og gerðist það eftir aðeins nokkrar vikur eftir að hafa dvalið hjá Loga og Svanhildi.
„Óð út, eins og hann væri heimsborgari, fríkaði út og endaði uppí Kattholti,“ segir Logi og heldur áfram: „Kom svo heim næsta dag með skottið milli lappanna, í orðsins fyllstu merkingu og fór varla útúr húsi eftir það. [...] Annars reynir hann helst að ná átján tíma svefni til að geta staðið undir þessum vöktum í stofuglugganum. Þar situr hann og horfir á fólkið og fuglana. Það er sennilega aðalstarf hans.“
En nú er Litlikisi týndur aftur. Logi viðurkennir að hafa notað samfélagsmiðla, logið sig inn í Facebook-hópa og talað um köttinn í útvarpsþætti sem hann stýrir á K100. Logi segir:
„Nú er hann týndur aftur. Það er hræðilegt. Við höfum leitað útum allt. Dreift auglýsingum, gengið um götur um allan bæ með harðfisk í poka, kallandi á hann. Það er mögulega ekkert sérlega svalt að ganga kallandi um götur, lyktandi eins og Kolaportið en það skiptir ekki máli. Við verðum að finna hann,“ segir Logi og bætir við að lokum: „Það er mögulega að renna uppfyrir ykkur núna að ég er algjörlega samviskulaus þegar um hagsmuni kattanna minna er að tefla. Þetta er semsagt í raun bara ein stór auglýsing um týndan kött. Og þetta er mynd af honum. Ég skammast mín ekki neitt!“