Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og oddviti Samfylkingarinnar í komandi borgarstjórnarkosningum, segir að það sé mjög lítill munur á málflutningi Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðismanna, og Vigdísi Hauksdóttur, oddvita Miðflokksins, þegar kemur að helstu borgarmálum. Hann sér ekki fyrir sér að Samfylkingin geti unnið með þeim flokkum né öðrum sem leggjast gegn gildandi skipulagi í Reykjavík.
Borgarstjórinn í Reykjavík er gestur sjónvarpsþáttar Kjarnans í kvöld á Hringbraut. Þar talar hann afdráttarlaust um hvaða flokka hann geti hugsað sér að vinna með eftir kosningar. Og hvaða flokka hann telur ekki flöt á samstarfi við. Meira hér á Kjarnanum.
Þetta er á meðal þess sem kemur fram í Kjarnanum í kvöld sem er frumsýndur Kl. 21 í kvöld.