Listería fannst í graflaxi

Listería greindist í graflaxi frá Ópal Sjávarfangi. Fyrirtækið hefur innkallað graflaxinn af markaði í samráði við Matvælastofnun, sem varar við neyslu á honum. Þetta kemur fram í frétt Matvælastofnunar,

Um er að ræða tvær vörutegundir af graflaxi og á innköllunin við allar lotur af graflaxi frá Ópal Sjávarfangi (bitar, hálf flök, heil flök og sneiðar) sem eru á markaði með síðasta notkunardag í janúar eða febrúar.

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni til fyrirtækisins gegn endurgreiðslu. Þeir sem eiga graflax frá því í desember eða janúar í frysti hjá sér, eru einnig beiðnir um að hafa samband og skila honum gegn endurgreiðslu.

Um listeríu

Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.