List í ljósi hlaut eyrarrósina 2019

Ljósalistahátíðin List í ljósi hlaut Eyrarrósina 2019. Frú Eliza Reid forsetafrú veitti hátíðinni, sem fer fram á Seyðisfirði, viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í Garði í gær. Viðurkenningin er veitt árlega fyrir afburða menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Listahátíð Reykjavíkur.

Verðlaunin voru nú veitt í fimmtánda sinn og frá upphafi hafa Listahátíð Reykjavíkur, Byggðastofnun og Air Iceland Connect staðið saman að þeim.

Úr umsögn valnefndar um List í ljósi, Eyrarrósarhafann 2019, segir:

„Hátíðinni, sem fer nú fram í fjórða sinn, hefur vaxið ásmegin ár frá ári og laðar nú að sér breiðan hóp listafólks og gesta til þátttöku í metnaðarfullri og fjölbreyttri dagskrá.“
...
„Sérstök ljósalistahátíð er nýnæmi í íslensku menningarlandslagi og er List í ljósi þegar farin að hafa áhrif langt út fyrir Seyðisfjörð, til að mynda með áhugaverðu samstarfi við Vetrarhátíð í Reykjavík. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá listaverkefni á landsbyggðinni taka leiðandi hlutverk á landsvísu á sínu sviði. “

Frú Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar, flutti ávarp og afhenti Celiu Harrison og Sesselju Jónasardóttur, stofnendum og stjórnendum hátíðarinnar, viðurkenninguna. Verðlaunin sem List í ljósi hlýtur er fjárstyrkur upp á tvær milljónir króna, auk verðlaunagrips sem hannaður er af Friðriki Steini Friðrikssyni vöruhönnuði.

Þá hlutu leiklistar- og listahátíðin Act Alone á Suðureyri og stuttmyndahátíðin Northern Wave í Snæfellsbæ formlega tilnefningu til Eyrarrósarinnar og 500.000 krónu verðlaunafé hvort.