Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir var kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) á Sambandsþingi sem fór fram um helgina í Hriflu, hátíðarsal Háskólans á Bifröst. Lilja hlaut rúmlega 82,1 prósent greiddra atkvæða.
Lilja er 22 ára og er varaþingmaður í Norðvesturkjördæmi. Hún vinnur í Grunnskóla Borgarfjarðar og hefur í haust fjarnám í grunnskólakennarafræðum.
Lilja er búsett Borgarbyggð með manni sínum og 8 mánaða syni þeirra.