Lífeyrissjóðirnir

Benedikt Jóhannesson hefur skipað hóp sem falið er vinna stutta skýrslu um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna. Hópurinn er skipaður í samráði við Landssamtök lífeyrissjóða. Verkefnið er að kortleggja árlega fjárfestingagetu lífeyrissjóðanna.

Hópurinn á að setja fram æskileg markmið um erlendar eignir lífeyrissjóðanna. Einnig gerir hópurinn áætlun um hversu hratt lífeyrissjóðirnir gætu náð slíkum markmiðum. Hópðurinn skal meta hvort æskilegt sé að breyta núverandi löggjöf um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna. Einkum og sér í lagi með tilliti til \"þaks eða gólfs\" á erlendar eignir þeirra. Hópurinn skal ljúka sinni vinnu á hálfum mánuði.

Nánar www.fjarmalaraduneytid.is