Morgunblaðið mælist með innan við 25 prósenta lestur í fyrsta skipti síðan mælingar hófust og annan mánuðinn í röð lesa innan við 40 prósent landsmanna Fréttablaðið. Þetta eru niðurstöður lestrarkönnunar Gallup. Vikublaðið Mannlíf sem dreift er frítt inn á heimili á höfuðborgarsvæðinu er með tæplega 20 prósenta lestur í fyrsta sinn sem lestur þess er mældur.
Alls eru fimm blöð í lestrarmælingu Gallup núna. Um níu prósent landsmanna lesa DV og Viðskiptablaðið samkvæmt nýjustu mælingunni.
Mjög hefur dregið úr lestri dagblaða síðustu ár eins og sést á lestri tveggja útbreiddustu blaðanna. Um og yfir 60 prósent landsmanna lásu Fréttablaðið að staðaldri þar til í ársbyrjun 2012. Síðan þá hefur lesturinn minnkað um þriðjung. Morgunblaðið átti sína gullöld þar til Fréttablaðið tók fram úr því snemma á öldinni og var þegar mest lét með um 70 prósenta lestur á níunda áratug aldarinnar. Blaðið var með um og yfir 40 prósenta lestur fram á fyrri hluta árs 2009 en hefur síðan þá misst um þriðjung lesenda.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/lestur-moggans-i-fyrsta-sinn-undir-25-prosent