Lést af völdum listeríusýkingar: borðaði reyktan lax

„Í byrjun janúar á þessu ári veiktist 48 ára gömul kona, með undirliggjandi ónæmisbælingu, af listeríusýkingu (Listeriamonocytogenes). Hún lést hálfum mánuði síðar af völdum sýkingarinnar. Fram kom að hún hafði borðað reyktan og grafinn lax um jólaleytið 2018. Leifarnar af laxinum voru geymdar í frysti á heimilinu og tókst að rækta bakteríuna úr honum. Ræktanir sem teknar voru frá verksmiðju og vörum framleiðandans leiddu í ljós sömu bakteríu. Í kjölfarið var framleiðslu hætt og öll matvæli innkölluð.“ Þetta kemur fram í Farsóttafréttum landlæknis.

Þá segir á vef RÚV: Í febrúar var greint frá því að Ópal Sjávarfang hefði stöðvað alla framleiðslu og dreifingu á vörum sínum eftir að listeríumengun fannst í vörum frá fyrirtækinu. Frekari rannsóknir hafi gefið tilefni til að ætla að ekki hafi tekist að uppræta hana. Matvælastofnun taldi jafnframt að fleiri afurðir kynnu að vera mengaðar af bakteríunni og ákveðið var því að innkalla allar reyktar afurðor úr verslunum

Einnig segir í Farsóttafréttum landlæknis. 

„Reyktar afurðir frá framleiðanda höfðu verið fluttar út til Frakklands en dreifingaraðilum þar var gert viðvart. Ekki hafa borist neinar tilkynningar um sýkingar af völdum bakteríunnar vegna neyslu á íslenskum vörum innan Evrópusambandsins (ESB) eða Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Árið 2017 greindust 2.502 tilfelli af listeríusýkingum innan ESB/EES með 14% dánartíðni.

Það ár greindust sjö tilfelli af sjúkdómnum á Íslandi. Fjórir af þessum sjúklingum létust, þrír af þeim voru eldri einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma en einn var nýfætt barn. Sýkingarnar voru taldar af innlendum toga í sex af þessum tilfellum. Svo virðist sem listeríusýkingar hafi verið að færast í vöxt hér á landi undanfarna tvo áratugi.“