Leita nú að hauki lifandi

Eva Hauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar telur að sonur sinni geti enn verið á lífi, þvert á þær upplýsingar sem hún hefur áður fengið. Eva skrifar á vefsíðu sína norn.is

„Fyrir viku taldi ég nánast útilokað að sonur minn væri á lífi. Ég hélt hreinlega að talsmenn hreyfingarinnar sem hann vann með myndu ekki fullyrða það nema það væri hafið yfir vafa. En þegar nánar er að gætt þá virðast þeirra upplýsingar bara byggðar á sögusögnum og getgátum“, skrifar Eva.

„Talsmenn IFB fullyrða að Haukur hafi látist í þessari árás 24. febrúar en þeir geta ekki bent á neitt lík og 17 dögum síðar geta þeir ekki gefið upp tímasetningu”, bendur hún enn fremur á og vísar þar til alþjóðlegs hóps sjálfboðaliða, International Freedom Battalion (IFB) sem berjast við hlið YPG sem er her sýrlenskra Kúrda.  

„Talsmenn IFB segja að vitni hafi séð Hauk falla. Fyrst átti hann að hafa fallið fyrir skothríð en nú segja þeir að hann hafi látist þegar sprengju var varpað á svæðið. Vitni hljóta að gera greinarmun á þessu tvennu. Þeir hafa ekki talað við nein vitni milliliðalaust og þeir geta heldur ekki bent mér á neina sjónarvotta. Segja bara að vitni muni hafa samband við mig síðar. Það eru semsagt engar áreiðanlegar heimildir fyrir því að Haukur sé látinn. Það gæti allt eins verið að félagar hans hafi bara misst sjónar á honum og ályktað (réttilega eða ranglega) að hann hafi fallið\".

„Fólk sem hefur verið í Rojava segir okkur að það sé engin almennileg skýrslugerð eða utanumhald um upplýsingar hjá andspyrnuhreyfingum þar. Ég held að við getum ekki treyst því að forvígismenn IFB og YPG viti neitt meira en við en auk þess er síma- og netsamband við Sýrland lélegt og stopult og tungumálaerfiðleikar í þokkabót. Það eina sem við getum slegið föstu í augnablikinu er að við vitum ekki hvort Haukur er lífs eða liðinn og við verðum að leita með því hugarfari að hann sé á lífi og í lífshættu,\" skrifar Eva.