Leiguverð hjá bjargi frá 96 þúsundum

Leiguverð í úbúðum Bjargs, íbúðafélags, sem rekið er af ASÍ og BSRB verður á bilinu 96 þúsund, fyrir tveggja herbergja íbúð, upp í 200 þúsund krónur fyrir fjögurra herbergja íbúð. Þetta kemur fram i tilkynningu frá félaginu í dag, en því er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.

Þar segir að Bjarg íbúðafélag muni byggja um 1400 leiguíbúðir á næstu fjórum árum og er félagið nú þegar með tæplega 238 íbúðir í byggingu og um 430 í hönnunarferli. Stefnt er á að fyrstu íbúðir verði afhentar um mitt ár 2019.

Bjarg hefur, samkvæmt tilkynningunni gert áætlanir um leiguverð fyrir íbúðir félagsins á Móavegi, Urðarbrunni og Akranesi. Áætlun um leigu miðast við verðlag 2018 og áætlanir félagsins um byggingakostnað, vaxtakostnað og kostnað vegna rekstur fasteignanna. Leiguverð verður gefið út þegar íbúðir verða fullbúnar og mun það taka mið af endanlegum byggingarkostnaði. Vextir á langtímafjármögnun mun einnig hafa mikil áhrif á leiguverð en fjármagnskostnaður mun ekki liggja fyrir fyrr en íbúðir fara í leigu.

Félagið mun á líftíma eignanna stöðugt leitast við að lágmarka vaxta- og rekstarakostnað og mun skila öllum ávinningi til leigutaka, segir í tilkynningunnu.

Við hönnun íbúða Bjargs var leitast við að ná góðri nýtingu á íbúðarfermetrum og með færri fermetrum getur félagið boðið lægra heildarleiguverð til leigutaka. Það er m.a. gert með því að nýta ný ákvæði í byggingareglugerð varðandi stærðir rýma og útfærslur á geymslum. Stefnt er á að allir fermetrar nýtist og séu innan íbúðar en liggi ekki að hluta til í geymslum í kjallara eins og algengt er. Meðalstærð tveggja herbergja íbúðar er um 45 fermetrar, þriggja herbergja íbúð er um 70 fermetrar og fjögurra herbergja íbúð um 85 fermetrar.

Leiguverð eigna félagsins verður misjafnt milli staðsetninga en þar hefur lóðaverð töluverð áhrif ásamt skipulagsskilmálum og þá hvernig þeir styðja við byggingu hagkvæms húsnæðis.

Áætlað leiguverð 2ja herbergja íbúðar er frá 96 þúsund til 130 þúsund miðað við rekstrarforsendur og verðlag 2018. Greiðslubyrgði leigu miðað við lágmarkslaun gæti orðið frá 55.000 fyrir einstakling þegar tekið er tillit til húsnæðisbóta.

Áætlað leiguverð á 3ja herbergja íbúðar er frá 128 þúsund til 169 þúsund miðað við rekstrarforsendur og verðlag 2018. Greiðslubyrgði leigu miðað við lágmarkslaun gæti orðið frá 90.000 fyrir hjón/par með eitt barn þegar tekið er tillit til húsnæðisbóta.

Áætlað leiguverð á 4ja herbergja íbúðar er frá 146 þúsund til 200 þúsund miðað við rekstrarforsendur og verðlag 2018. Greiðslubyrgði leigu miðað við lágmarkslaun gæti orðið frá 99.000 fyrir hjón/par með 2 börn þegar tekið er tillit til húsnæðisbóta.

Bjarg mun einnig bjóða stúdíó íbúðir og mun leiguverð verða um 15% lægra en 2ja. herbergja íbúða. Það fer þó eftir stærð íbúða sem getur verið misjöfn eftir verkefnum. Þá mun félagið bjóða 5 herbergja íbúðir sem verða um 100 fermetrar að stærð. Áætlað leiguverð þeirra verður um 12% hærra en 4. herbergja íbúða. Ljóst að greiðslubyrði 5 herbergja íbúða verður hlutfallslega hærra en smærri íbúða að teknu tilliti til húsnæðisbóta þar sem núverandi reglugerð gerir að hámarki ráð fyrir 4 heimilismönnum.

Opið er fyrir skráningu á biðlista hjá Bjargi og fer hún fer fram rafrænt á www.bjargibudafelag.is. Áhugasamir skrá sig á biðlista óháð hvaða eign er verið að sækja um. Nöfn þeirra sem skrá sig fyrir 31. júlí fara í pott sem verður dregið úr um númer á listanum. Eftir þann tíma fá umsækjendur númer í þeirri röð sem skráningar berast. Íbúðir verða auglýstar til leigu í áföngum og mun þá verða hægt að sækja um ákveðnar staðsetningar. Staða á biðlista ræður til um úthlutun.