Leiðarahöfundur morgunblaðsins um breytingar á stjórnarskránni: „vitleysingaspítalinn taka tvö er kominn á dagskrá“

Í leiðara Morgunblaðsins í dag er skrifað um tilraunir til að endurskoða stjórnarskrá Íslands og rökræðukönnunina sem átti sér stað í Laugardalshöll um helgina. Ekki er birt nafn undir leiðarann, en ritstjórar Morgunblaðsins eru þeir Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen. Fyrirsögn leiðarans er „Vitleysingaspítalinn taka tvö er kominn á dagskrá,“ en hann fjallar um fyrirhugaðar breytingar á stjórnarskrá Íslands. Höfundur leiðarans segir það stórundarlegt að Sjálfstæðisflokkurinn sé að taka þátt í þessum skrípaleik.

„Í gær voru sagðar fréttir af því að stjórnarskrárruglið gengi nú aftur. Og allur var aðdragandinn jafn vitlaus og síðast og jafnvel voru fulltrúar ólögmæta „stjórnlagaráðsins“ hafðir í áhrifastöðum á nýju upphafsfundunum, dreifandi gömlu gögnunum sem gengu aldrei upp og hleypandi upp fundinum, sem er varla gagnrýnisvert. Það stórundarlega er að þegar þessi skrípaleikur, taka tvö, er settur í gang á ný er hann með samþykki og velvilja Sjálfstæðisflokksins! Hvernig gat það gerst?“

Höfundur leiðarans segir að ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hafi hleypt öllu í bál og brand með því að setja af stað umræðu um breytingu á stjórnarskrá Íslands.

„Jóhönnu-/Steingrímsstjórnin taldi fall íslensku bankanna ákjósanlegt tækifæri fyrir sig til að hleypa öllu í bál og brand á þeirri stundu þegar þjóðin þurfti mest á samheldni að halda. Aldrei var það rökstutt hvað stjórnarskrá landsins hefði haft með fall bankanna að gera. Bankaáfallið var alþjóðlegt þótt það hefði verið tilfinnanlegra um margt hér en annars staðar. Hvergi annars staðar kom upp sú hugmynd að vegna áfallsins þar þyrfti að breyta stjórnarskrá viðkomandi lands.“

Að lokum segir höfundur pistilsins að vitleysan sé aftur farin af stað í umræðunni um breytingar á stjórnarskránni.

„Byrjað var á stórskrípaleik í Laugardagshöll þar sem fundarmenn sátu við 100 hringborð með „leiðbeinanda“ við hvert og hugsuðu upp stikkorð um breytingar á stjórnarskrá. Og kraftaverkið gerðist því af öllum borðum í þessu risastóra andaglasi bárust svipuð stikkorð og spekingar létu eins og tilviljanakennd tombóla af þessu tagi væri frábært upphaf á breyttri stjórnarskrá. Og nú er vitleysan farin af stað aftur. Og þar fara fyrir flokkar sem hafa sýnt að þeir telja vilja stjórnarskrárinnar ekki skipta neinu máli, frekar en að ákvarðanir æðstu funda þeirra sjálfra séu marktækar.“

Stjórnarskáarfélagið sendi frá sér tilkynningu vegna skrifa Morgunblaðsins og segir að meint afskipti félagsmanna af rökræðukönnuninni sjálfri sé fjarstæðukenndur.

„Umfjöllun mbl.is og leiðarahöfundar Moggans um meint afskipti félagsmanna af rökræðukönnuninni sjálfri er fjarstæðukenndur enda hefur forstöðumaður Félagsvísindastofnunar komið því skýrt á framfæri að viðvera örfárra einstaklinga úr félaginu hafi engin áhrif haft á fundinn, sem reyndar var öllum opinn þótt það hafi ekki farið hátt. Fréttaflutningur sem þessi er samt sem áður góð áminning um þau sérhagsmunaöfl sem standa að útgerð Morgunblaðsins og undir viðvarandi taprekstri þess.“