Landssamband veiðifélaga fylgist með tuttugu og fimm vatnakerfum. Veiði fer vel af stað þetta veiðitímabil og ber mönnum saman um að góðar heimtur séu úr hafi - bæði á stórlaxi sem og á smálaxi - lax hafi gengið snemma og laxar séu afskaplega vel á sig komnir.
Vatnabúskapur er víðast hvar með ágætum en ljóst er að víða þarf að treysta á úrkomu til að halda góðu vatni í ám á þessu veiðitímabili sökum þess að vatnsforði eftir liðinn vetur er fremur lítill. Grunnvatnsstaða er þó víða góð og það hjálpar. En hverju sem því líður þá er staðan núna víða góð.
rtá
Nánar www.angling.is