Árið 2017, voru að jafnaði 17.599 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 658 (3,9%) frá árinu 2016. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 188.600 einstaklingum laun og fjölgaði þeim um 8.500 (4,7%) frá fyrra ári.
Launþegum fjölgar milli ára í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Launþegum fækkar í sjávarútvegi.
Í desember 2017 voru 2.744 launagreiðendur og um 13.100 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.700 (15%) samanborið við desember 2016. Í desember voru 1.803 launagreiðendur og um 25.900 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 1.600 (6%) á einu ári. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 7.500 (4%).
Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.Launagreiðendum