Talið er að laumufarþegi hafi fallið úr flugvél Kenya Airways á sunnudaginn. Flugvélin var að koma frá Nairobi í Kenýa, en lík laumufarþegans fannst skammt frá Heathrow flugvellinum rétt fyrir utan London á sunnudaginn. Lögreglan segir að laumufarþeginn hafi líklegast verið að fela sig í lendingarbúnaði flugvélarinnar. Laumufarþeginn lenti eingöngu rúmlega einum metri frá manni sem var í sólbaði í garðinum sínum í Clapham.
Bakpoki, ásamt vatni og mat, fannst í lendingarbúnaði flugvélarinnar, en samkvæmt yfirvöldum er þetta ekki í fyrsta skiptið sem lík finnast í kringum Heathrow flugvöllinn. Segja yfirvöld að laumufarþeginn hafi líklegast látist vegna súrefnisskorts eða kulda og fallið svo úr vélinni þegar hún setti lendingarbúnað sinn niður.