„Mér finnst það ekki okkar verkefni að hreinsa upp eftir fólk sem hefur kosið að brjóta svona gróflega og jafnvel margítrekað, jafnvel gegn mörgum börnum. Þetta eru ekki grá svæði þegar fullorðið fólk er að ráðast á lítil börn“, segir Thelma Ásdísardóttir á Þjóðbraut hjá Lindu Blöndal í kvöld.
„Mér finnst að þegar fólk velur að gera þetta, og ég nota orðið velur mjög meðvitað, að þá er fólk líka að velja framtíðina fyrir sjálft sig“, segir Thelma þegar rætt er um brotamenn í kynferðisbrotum og hafa sumir samt afplánað fangelsisdóm.
Baráttan gegn kynferðisbrotum gegn börnum hefur tekið á sig nýja og stærri mynd. Ríkisstjórnin er farin frá og ástæðan tengist einmitt þessari baráttu.
Sú barátta tók dramatískum breytingum eftir að Saga Thelmu – Myndin af pabba kom út árið 2005.
Thelma er einn stofnanda og starfsmaður hjá Drekslóð mætir á Þjóðbraut til Lindu Blöndal. Samtökin Drekaslóð aðstoða þolendur hvers konar ofbeldis.