Dr. Þór Whitehead prófessor í sagnfræði við HÍ og Sjálfstæðismaður kvartar undan samráðsleysi flokksforystunnar við grasrótina í Sjálfstæðisflokknum og vill að staða flokksins og formannsins sé tekin til umræðu.
Hringbraut bar skrif Dr. Þórs undir stjórnmálaskýrendur sem þekkja til Sjálfstæðisflokksins og sögðu þeir að á næsta landsfundi yrðu meginverkefni fundarins að kjósa flokknum nýjan formann og varaformann í stað Bjarna og Áslaugar Örnu.
Þeir minna á að Dr. Þór er ekki áhrifamaður í flokknum en taka beri mark á því sem hann segir.
Flokkurinn sé skiptur í þrjár fylkingar um oddvita og forystumenn flokksins.
Auðvitað hefur oft verið ágreiningur um menn og málefni í Sjálfstæðisflokknum.
Ein öflug fylkingin styður Bjarna og Áslaugu Örnu í sæti formanns og varaformanns.
Önnur máttlítil fylkingin fylgir Guðlaugu Þór og Kristjáni Þór í sæti varformanns og formanns.
Þriðja fylkingin er máttlaus og tengist áhrifamönnum flokksins úr Suðurkjördæminu og skipa sér um Pál Magnússon.
Harðar deilur verða á næsta landsfundi og Bjarni og Áslaug Arna sigra naumlega.