Mikill kurr er í starfsfólki og aðstandendum WOW air vegna ummæla stjórnarformanns Íslandsstofu í morgun, þar sem hann velti því upp hvort Samgöngustofa hefði átt að svipta flugfélagið flugrekstrarleyfi.
Framkvæmdastjóri Íslandsstofu, sem er stofnun sem hefur það hlutverk að sinna kynningarstarfi í þágu íslenskra útflutningsgreina, vill ekki tjá sig um ummæli stjórnarformannsins. Björgólfur, sem keypti hlutabréf í Icelandair í haust fyrir 3,1 milljón króna, segir við Fréttablaðið að hann voni að WOW air lifi og að hann hafi ekki farið í viðtalið sem stjórnarformaður Íslandsstofu.
Nánar á