Krefjast þess að skattabreytingar komi „hratt til framkvæmda og án undanbragða“

Í sameiginlegri yfirlýsingu krefjast Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Efnahags- og skattanefndar ASÍ, þess að skattalækkanir til handa þeim sem lægstar tekjur hafa komi hratt til framkvæmda og án undanbragða. Eru stjórnvöld krafin um skjót svör um hvernig þessar lækkanir verða framkvæmdar.

Í yfirlýsingunni segir að grundvöllur þeirra samninga sem nú eru í atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum stéttarfélaganna eru loforð um skattalækkanir til þeirra sem hafa lægstar tekjur, þar á meðal aldraðra og öryrkja. Vísað er til yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við samningana, þar sem stendur:

„Komið verði á fót þriggja þrepa skattkerfi með nýju lágtekjuþrepi. Miðað er við að sú aðgerð auki ráðstöfunartekjur tekjulægsta hópsins um tíu þúsund krónur á mánuði.“

Bent er á kröfu verkalýðshreyfingarinnar um fjögurra þrepa skattkerfi og leiðréttingu á skattatilfærslu frá tekjuháum hópum yfir á tekjulága. ASÍ segist munu halda áfram að berjast fyrir réttlátu skattkerfi.

„Það er ljóst að skattabreytingarnar þurfa að koma hratt til framkvæmda og án undanbragða. Fulltrúar vinnandi fólks munu ekki sætta sig við að þær verði innleiddar á næstu þremur árum. Á  þeim félagsfundum sem undirritaðar hafa setið, þar sem samningarnir og yfirlýsing stjórnvalda hefur verið kynnt, leggja félagsmenn mikla áherslu á skjót svör af hálfu stjórnvalda. Öll spjót standa því á stjórnvöldum að svara kalli vinnandi fólks og upplýsa um það hvernig fyrirhugaðar skattalækkanir verða framkvæmdar,“ segir að lokum í yfirlýsingunni.

Yfirlýsingin í heild sinni:

„Skjót svör um skatta!

Grundvöllur þeirra samninga sem nú eru í atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum stéttarfélaganna er meðal annars loforð um skattalækkanir til handa þeim sem lægstar tekjur hafa, þar með taldir aldraðir og öryrkjar. Í yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við samningana stendur orðrétt:

„Komið verði á fót þriggja þrepa skattkerfi með nýju lágtekjuþrepi. Miðað er við að sú aðgerð auki ráðstöfunartekjur tekjulægsta hópsins um tíu þúsund krónur á mánuði.“

Í ljósi þeirra alvarlegu breytinga sem átt hafa sér stað á skattkerfinu á síðustu áratugum, þar sem skattar hafa verið færðir af tekjuháum hópum yfir á tekjulága, krafðist verkalýðshreyfingin vegna augljósra sanngirnissjónarmiða fjögurra þrepa skattkerfis auk leiðréttingar á fyrrnefndri skattatilfærslu. Lengra varð ekki komist að þessu sinni en barátta Alþýðusambandsins fyrir réttlátu skattkerfi heldur áfram.

 Það er ljóst að skattabreytingarnar þurfa að koma hratt til framkvæmda og án undanbragða. Fulltrúar vinnandi fólks munu ekki sætta sig við að þær verði innleiddar á næstu þremur árum. Á  þeim félagsfundum sem undirritaðar hafa setið, þar sem samningarnir og yfirlýsing stjórnvalda hefur verið kynnt, leggja félagsmenn mikla áherslu á skjót svör af hálfu stjórnvalda. Öll spjót standa því á stjórnvöldum að svara kalli vinnandi fólks og upplýsa um það hvernig fyrirhugaðar skattalækkanir verða framkvæmdar.“