Forsetakosningarnar, fótboltinn og meirihlutavilji að fara úr Evrópusambandinu verður til umræðu í sunnudagsþætti Þjóðbrautar á Hringbraut.
Að venju verða margir gestir í þættinum, gestir sem hafa margt til málanna að leggja.
Kolfinna Baldvinsdóttir, Guðmundur Hálfdánarson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Margrét Sanders, Stefanía Óskarsdóttir verða í þættinum og fleiri eiga eftir að bætast við.
Að venju verður Sigurjón M. Egilsson stjórnandi þáttarins en nú mun Linda Blöndal verða með honum við þáttagerðina.
Allt bendir til uppbyggilegrar og skemmtilegrar umræðu. Þjóðbraut í beinni útsendingu milli klukkan 10:00 og 12:00 á sunnudaginn.