Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að frá og með hausti 2020 verði þrír grunnskólar starfræktir í norðanverðum Grafarvogi. Borgaskóli og Engjaskóli verði fyrir nemendur í 1.-7. bekk og Víkurskóli verði sameinaður unglingaskóli fyrir nemendur í 8.-10 bekk. Gert er ráð fyrir að hver skóli rúmi á þriðja hundrað nemendur.
Tillagan felur í sér að skólahald verður aflagt í Korpuskóla þar til börnum í Staðarhverfi á aldrinum 6-12 ára hefur fjölgað í 150 og verður þá ákvörðun um skólahald í hverfinu endurskoðuð í samstarfi við foreldra og íbúa. 59 nemendur eru nú í Korpuskóla og hefur fækkað úr 140 nemendum árið 2012 en skólinn er byggður fyrir 170 nemendur. Í samtali við Hringbraut segir Skúli Helgason, formanni skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, að áætlaður sparnaður borgarinnar við lokunina verði 200 milljónir á ári. Þá segir hann að enginn annar skóli í Reykjavík hafi séð jafn mikla fækkun í nemendafjölda og í Korpuskóla.
Samkvæmt tillögunni á að tryggja að samgöngubætur verði gerðar í hverfinu til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og til að tengja betur öll hverfi í norðanverðum Grafarvogi. Göngu- og hjólaleiðir verði bættar til að gera skóla-, frístunda- og íþróttastarf aðgengilegra fyrir íbúa í öllum norðanverðum Grafarvogi. Undirgöng eiga verða byggð eða ámóta örugg göngu- og hjólaleið verði sett við Strandveg/Víkurveg á milli Garðsstaða og Breiðavíkur. Sett verði upp gönguljós og þrenging götu við Mosaveg. Unnið verði að úrbótum á almenningssamgöngum í samstarfi við Strætó b.s., með áherslu á fjölgun biðstöðva og tíðari ferðir.
Skúli segir að fjármagn sé þó ekki enn tryggt fyrir þessum framkvæmdum, en segir að þau ætli að tryggja fjármagn fyrir framkvæmdum sem minnst er á í tillögunni.
„Við ætlum bara að fá þetta fjármagn, það er ekkert annað í boði. Við ætlum að tryggja það að þetta fjármagn komi“ segir Skúli
Einnig kemur fram í tillögunni að unnið verði að úrbótum á almenningssamgöngum í samstarfi við Strætó b.s., með áherslu á fjölgun biðstöðva og tíðari ferðir. Aðspurður hvernig hægt sé að lofa fjölgun ferða í hverfinu þegar Reykjavíkurborg hefur ekki einhliða ákvörðunarvald um breytingar á leiðakerfi Strætó b.s. segir Skúli að skóla- og frístundaráð hafi rætt þessa hugmynd við Strætó b.s og fyrirtækið hafi tekið jákvætt í þær breytingar, en engin ákvörðun hefur verið tekin um fjölgun biðstöðva né tíðari ferðir.
Í tillögunni kemur fram vilji meirihluta skóla- og frístundaráðs til að skólahúsnæðið í Korpu nýtist áfram í skóla- og frístundastarfi þannig að foreldrar hafi val um skóla- og frístundaúrræði fyrir börn sín. Í því sambandi verði meðal annars leitað eftir áhuga sjálfstætt starfandi skóla. Skúli segir að nú þegar hafi aðili haft samband við borgina og sýnt áhuga á húsnæði skólans. Hann vildi ekki svara um hvaða aðila væri um að ræða.
Á fundi skóla- og frístundaráðs var lagt fram álit borgarlögmanns um að ekki sé nauðsynlegt að breyta deiliskipulagi áður eða samhliða því að skólahaldi verði hætt í Korpuskála. Með hliðsjón af fyrirhuguðum úrbótum á samgöngum milli hverfa er, að hans mati, ekki fyrir hendi skaðabótaábyrgð af hálfu borgaryfirvalda gagnvart íbúum Staðarhverfis.