Kolbrún: „of margir íslendingar eru bílóðir“

„Það verður ekki horft fram hjá þeirri dapurlegu staðreynd að of margir Íslendingar eru bílóðir, vilja fara allt í einkabílnum og geta vart hugsað sér verslunarleiðangur nema vita af bílnum fyrir utan verslunina sem þeir líta inn í. Þess vegna fara þeir í Ármúla og Síðumúla og á Suðurlandsbrautina og í Kringluna og Smáralind þar sem fjarska auðvelt er að leggja bílnum.“

Þetta segir Kolbrún Bergþórsdóttir í leiðara Fréttablaðsins í dag.

Hún bendir á að borgarstjórn Reykjavíkur hafi eytt mikilli orku og tíma í að sannfæra borgarbúa um það að góður lífsstíll felist meðal annars í því að hvíla einkabílinn en að sú hvatning nái ekki til allra. „Þeir bílóðu einstaklingar sem elska bílinn sinn næstum jafn mikið og sjálfa sig taka engum sönsum og munu sennilega aldrei gera það. Sem er leitt því það er yndislegt að ganga Laugaveginn, Skólavörðustíginn, Austurstrætið og fleiri götur miðbæjarins.“

„Þessu gera erlendu ferðamennirnir sér glögga grein fyrir, enda virðist þeim líða alveg ljómandi vel í miðbænum og líta í verslanir og eru ekkert að flýta sér. Bílelskandi Íslendingar ættu að fara að dæmi þeirra og leyfa sér að ganga um bæinn í rólegheitum og njóta þess að vera til. Það er góð leið til að minnka streituna,“ bætir Kolbrún við.

Hún segir að miðborg eigi að vera sjarmerandi og eftirsóknarverður staður þar sem fólk njóti þess að vera. Kolbrúnu þykir miðbær Reykjavíkur vera það að stórum hluta. „[F]yrir utan Hafnar­torg[,] sem virðist ekki ætla að verða heillandi verslunarsvæði. Hins vegar er Skólavörðustígurinn orðinn ansi lífleg gata og Austurstrætið er alltaf vinalegt, Hlemmur er svo orðinn allt annar eftir að hin vel heppnaða Mathöll reis þar og Grandinn er dásamlegt svæði þar sem notalegt er að vera. Laugavegurinn er hins vegar að þróast í nokkuð undarlega átt með ótal smekklausum lundabúðum sem standa þó undir sér, jafn einkennilegt og það nú er.“

„Bíleigendur verða að átta sig á því að öflug bílaumferð á ekki við í miðbæjum stórborga og hana þarf að takmarka. Þetta er gert víða í borgum erlendis og þykir ekki stórmál. Stöðugt kvak bíleigenda og sumra verslunarmanna um óréttlætið sem felst í takmörkun umferðar í miðbænum er ansi þreytandi. Meirihluti borgarstjórnar er örugglega á villigötum í einhverjum málum en þegar kemur að takmörkun bílaumferðar í miðbænum þá er einmitt verið að gera það sem gera þarf,“ segir Kolbrún að lokum.