„Hálftíma hefur tekið að aka frá Nordica Hilton að Glæsibæ. Almáttugur. Það eru sko 10 ár í Borgarlinu. Ég er oftast róleg og yfirveguð en orðin foxill og hugsaði borgarstjóra og hans fólki í núverandi og síðasta meirihluta þegjandi þörfina. Í alvöru, þarf þetta að vera svona? Nei.“
Þetta segir Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokk fólksins, á Facebook í dag. Umferðarmál hafa verið í umræðunni undanfarið og kynntu stjórnvöld og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu framtíðarskipulag í umferðarmálum til ársins 2025 nú á dögunum. Kolbrún segir að ýsmar lausnir hafa verið bornar fram til að leysa umferðarvandann í borginni, en engin slær í gegn. Hún spyr hvort það trúi einhver því að brogarlínan muni leysa úr umferðarvandanum sem eru til staðar í dag á höfuðborgarsvæðinu.
„Það hafa verið bornar á borð ýmsar lausnir en engin slær í gegn. Bara sagt BORGARLÍNA!! HÚN REDDAR ÞESSU ÖLLU!! Trúir því einhver? Segi bara aftur eins á fundi borgarstjórnar á þriðjudaginn á sama tíma og ég flissaði og var skömmuð í kjölfarið \"Í alvöru?“