„Börn alkóhólista eru hópur barna sem hvorki heyrist hátt í né mikið er rætt um. Ótal margar breytur skjóta upp kollinum þegar kemur að þessum hópi. Hvað er þetta stór hópur? Hvernig gengur að ná til hans og hver er þörfin? Hver eru helstu einkennin og hverjir sjá þessi einkenni helst?“
Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi flokks fólksins veltir þessum spurningum fyrir sér í pistli sínum í Morgunblaðinu í dag.
Segir hún mikið vatn hafa runnið til sjávar hvað varðar fræðslu og þekkingu um alkóhólisma en að þöggun og fordómar í garð foreldra sem eru alkóhólistar og börn þeirra sé enn til staðar.
„Börnin reyna því oft að leyna vandanum eða afneita honum,“ segir hún.
Kolbrún segir alkóhólismann þrískiptan sjúkdóm sem hefur áhrif á vitsmuni, líkama og sál. Eitt af einkennum hans sé stjórnlaus löngun í áfengi.
„Það bjóðast mörg meðferðarúrræði fyrir alkóhólista í dag. Alkóhólismi er ekki lengur vonlaust ástand ef sjúkdómurinn er viðurkenndur og meðhöndlaður,“ segir Kolbrún. Þá segir Kolbrún áhrif alkóhólisma á börn þeirra vera bæði til skammtíma og langtíma.
„Sködduð sjálfsmynd og meðvirkni eru meðal alvarlegustu afleiðinganna. Meðvirkni er sjúkdómur sem herjar á aðstandendur alkóhólista og eru börn þar engin undantekning. Meðvirkni getur leitt til þess að barn á í erfiðleikum með að bregðast við áreiti samkvæmt innstu sannfæringu. Dæmi um meðvirkni í fjölskyldu alkóhólistans er þörfin að láta allt líta vel út á yfirborðinu og þegja yfir hinum raunverulega vanda. Barn sem elst upp við alkóhólisma foreldris/foreldra getur átt erfitt með að meta og lesa í samskipti og aðstæður og hefur færri bjargráð til að grípa í. Gott stuðningsnet barns, ráðgjöf og fræðsla getur skipt sköpum þegar kemur að neikvæðum áhrifum og afleiðingum þess að alast upp eða umgangast foreldri sem glímir við alkóhólisma.“
Kolbrún segist hafa lagt fram tillögu í borgarstjórn þess efnis að hún samþykki að setja á stofn stuðningsþjónustu fyrir börn sem eiga foreldra í neyslu. Segir hún mikilvægt að öll börn í þessum aðstæðum hafi aðgang að stuðningsþjónustunni.
„Án tillits til hvort barnið sjálft sé metið í áhættuhópi, hvort það búi hjá foreldrinu sem glímir við áfengisvanda eða sé í umgengni við það. Ekki á að vera þörf á sérstakri tilvísun í úrræðið heldur sé látið nægja að forsjáraðili óski eftir stuðningi og meðferð fyrir barn sitt eins lengi og það þarf og vill þiggja. Stuðningurinn myndi vera í formi sálfræðiþjónustu, persónulegrar ráðgjafar, hópastarfs og fræðslu.“
Segir hún markmiðið meðal annars vera það að hjálpa börnum alkóhólista að hlúa að eigin sjálfsmynd, rækta félagslega færni og fræðast.
„Markmiðið væri einnig að hjálpa börnunum að greina á milli fíknisjúkdómsins og persónunnar sem glímir við hann. Stuðningsþjónustunni er ætlað að veita börnunum viðurkenningu á stöðu sinni og aðstæðum í fjölskyldum þar sem áfengi- og almennur neysluvandi er til staðar. Foreldrar ættu einnig að geta fengið ráðgjöf og fræðslu eftir atvikum. Sérhæft stuðningsúrræði fyrir börn alkóhólista skilar sér margfalt. Barn sem fær tækifæri við öruggar aðstæður til að tjá sig um neysluvandamál foreldris getur losað um djúpstæða vanlíðan og áhyggjur. Börn sem alast upp við þessar aðstæður trúa því stundum að þau beri ábyrgð á neyslu foreldris með einhverjum hætti. Fræðslan skiptir barn miklu máli og sú vitneskja að neysluvandi foreldrisins sé ekki á ábyrgð þess að neinu leyti. Samtal um áfengisvanda foreldrisins getur stuðlað að því að barn losni við tilfinningar á borð við skömm og sektarkennd. Slík leiðrétting á íþyngjandi tilfinningum og hugsunum er börnum mikill léttir og markar jafnvel nýtt upphaf í lífi þeirra.“
Segir Kolbrún að sambærilega þjónustu sé hægt að fá hjá SÁÁ sem hafi unnið gott starf með börnum alkóhólista í mörg ár.
„Vinna SÁÁ fríar ekki Reykjavíkurborg við skyldum sínum gagnvart börnum alkóhólista. Vissulega hefur þessum börnum verið hjálpað í Reykjavík. Það hefur samt ekki komið fram hvað hefur verið gert nákvæmlega fyrir þennan hóp og hversu mikið. Reykjavíkurborg hefur alla burði til að stofna eigið úrræði fyrir börn alkóhólista og skipuleggja metnaðarfullt stuðningsúrræði þeim til hjálpar.“