Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur í Laugarneskirkju segir að hún viti til þess að íslenskir prestar í Noregi og Svíþjóð bjóði flóttamönnum kirkjugrið þar í landi. Hún segir að hugmyndin um „friðhelgi“ sé lifandi hugtak í dag þótt kirkjugrið eigi sér gamlar rætur. Vekja verði athygli á því þegar flóttamenn eru svo oft sendir úr landi héðan og hafnað hæli.
Kristín Þórunn verður á Hringbraut í kvöld en mikla athygli vakti þegar tveir hælisleitendur frá Írak, voru dregnir út úr Laugarneskirkju með lögregluvaldi í gærmorgun. Það sem er óvenjulegt við þetta mál er að þarna beitir kirkjan sér pólitískt hér á landi og vill láta reyna á forna hefð um kirkjugrið.
Hælisleitendunum var boðið í kirkjuna með stuðningi Biskups Íslands. Annar mannanna er um þrítugt en hinn nokkru eldri en átján ára. Þeir voru í gær sendir aftur til Noregs.
Aðspurð hvort að það verði ekki að fara að lögum og kirkjan geti ekki verið hafin yfir þau segir Kristín að hún og fleiri prestar vilji vekja athygli á því að meiri mannúð þurfi í meðhöndlun flóttamannamála hér. Hún var spurð á Hringbraut hvort það að hýsa flóttamann sem á að fara úr landi, sé ekki líkt og að hýsa mann sem mæta á í afplánun í fangelsi segir hún það ekki sambærilegt. Hælisleitendur hafi ekki framið glæp hér á landi. Flóttamaður sé ekki það sama og glæpamaður.
Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur í Laugarneskirkju segir að hún viti til þess að íslenskir prestar í Noregi og Svíþjóð bjóði flóttamönnum kirkjugrið þar í landi. Hún segir að hugmyndin um „friðhelgi“ sé lifandi hugtak í dag og því verði að vekja athygli á því þegar flóttamenn eru svo oft sendir úr landi héðan. Þótt kirkjugrið sé forn siður eigum við samt staði þar sem fólk fær grið, svo sem í sendiráðum, bendir Kirstín Þórunn á.