Hringrás ógæfunnar hefst þegar valdhafar í Kína lenda á villigötum eða þannig segir í kínverskri sögn sem gekk mann á meðal eftir fráfall Maó hins mikla stýrimanns þann 9.september 1976 og fjórmenningarklíkan undir forsytu ekkku Maó tók öll völd í Kína.
Stjórnmálaskýrendur benda á að ríksoddvit Kína og formaður Kommúnistaflokks Kína herra Xi skapar ekki það fordæmi fyrir gagnbyltingaröflin í Kína og óánægða Kínverja að Kínverjir steypi af stóli leiðtoga í grannríki Kína. Leiðtoga sem þar að auki er sannur kommúnisti.
Xi leiðir því Kína ekki inn á villigötur. Kim Jong-un er óhultur. Ekkert afl kemur honum frá völdum. Hvorki afl sprottið upp innnan Norður-Kóreu né utan landsins.
Kínverjar skapa ekki fordæmi til eftirfylgni fyrir gangbyltingaröflin innnan Kína.