Aukinni vígvæðingu í Norðurhöfum og á Norðurslóðum var mótmælt einróma á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem fram fór í dag á Hótel Skaftafelli í Öræfum. Þá var hamfarahlýnun og veðurfarsöfgum vegna loftlagsbreytinga lýst sem brýnasta pólitíska viðfangsefni samtímans.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, segir í samtali við Fréttablaðið að of snemmt sé að segja til um hvort hún muni mótmæla viðkomandi vígvæðingu Norðurslóða á fundi sínum með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, þar sem óljóst sé hvort af fundinum verði.
Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins.
„Nú er algjörlega óvíst hvort verði af þeim fundi. En ég tók þessi mál til að mynda upp á fundi með Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann kom hingað til lands og fór sérstaklega yfir þessa stöðu,“ segir Katrín
Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins. Fréttina má lesa í heild sinni hér.