Í dag fagnar Sjálfstæðisflokkurinn merkum tímamótum en fyrir 90 árum sameinuðust Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn varð til. Í tilefni dagsins var haldin fjölskylduhátíð í Valhöll.
Á Vísi er greint frá því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi haldið ávarp. Fór hún sérstaklega fögrum orðum um Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins. Sagði Katrín að í öllum stjórnmálaflokkum væri að finna gott fólk og þakkaði hún Sjálfstæðisflokknum og Bjarna fyrir ánægjulegt samstarf.
Þá sagði Katrín að Bjarni væri einn besti samstarfsmaður sem hún hefði nokkurn tímann unnið með á sínum stjórnmálaferli. Uppskar hún mikinn fögnuðu Sjálfstæðismenn í Valhöll við þessi orð.