Katrín: „börn og ungmenni hafa oft aðra sýn á samfélagið en eldri kynslóðir“ - barnaþingi í hörpu lauk í dag

Barnaþingi lauk í dag sem er hið fyrsta sinnar tegundar sem haldið er hér á landi. Ákveðið var á síðasta löggjafarþingi að breyta lögum um Umboðsmann barna þannig að barnaþing verði haldið annað hvert ár. Skal þingið fjalla um málefni barna og niðurstöður þess afhentar ríkisstjórn Íslands. Markmið barnaþings er að efla og virkja börn til lýðræðislegrar þátttöku og veita sjónarmiðum þeirra brautargengi.

Þingstörf barnaþings fóru fram í dag og voru niðurstöður þingsins afhentar ríkisstjórn í þinglok. Þær munu svo hafa bein áhrif á aðgerðaáætlun sem nú er í undirbúningi hjá félags- og barnamálaráðherra um aukna þátttöku barna í stefnumótun í kjölfar samþykktar ríkisstjórnar frá því í mars á þessu ári.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra og Salvör Nordal, umboðsmaður barna, fluttu ávörp við setningu þingsins í gær. Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands sýndu myndir af sér frá barnsaldri, tóku þátt í umræðu á sviði og svöruðu því meðal annars hvort þau hafi dreymt um að hafa áhrif sem börn.

Í lok barnaþings tóku Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, við niðurstöðum þingsins.

„Aukin áhrif barna og ungmenna á samfélagið hafa lengi verið mér hugleikin en barnaþing markar tímamót í því verkefni. Samfélag þar sem börn og ungmenni hafa sterka rödd og geta talað skýrt og milliliðalaust við ráðamenn verður betra samfélag fyrir okkur öll, ekki bara börn og ungmenni. Börn og ungmenni hafa oft aðra sýn á samfélagið en eldri kynslóðir og forgangsraða öðruvísi,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.