Fregnir um að ríkið hafni öllum kröfum Guðjóns Skarphéðinssonar vegna Guðmundar og Geirfinnsmálsins og krefjist í ofan á lag málskostnaðar úr hendi hans hefur vakið mikla reiði. Katrín Oddsdóttir lögfræðingur sem einnig er þekkt fyrir störf í þágu mannréttinda og mannúðar birtir bréf til Guðjóns frá íslenska ríkinu. Eins og flestir lesendur gera sér grein fyrir er bréfið skrifað af Katrínu og ádeila á ákvörðun ríkisins og segir í raun alla söguna.
Kæri Guðjón,
Ég frelsissvipti þig án sakar.
Ég pynda þig í varðhaldi og byrla þér lyf.
Ég hef þig innilokaðan nógu lengi til að þú játir á þig morð.
Ég dæmi þig svo fyrir að drepa mann sem aldrei fannst sem lík, það skiptir mig ekki máli að sönnunargögnin séu ekki til staðar. Ég þarf sökudólg.
Svo læt ég þig berjast áratugum saman fyrir hreinsun á mannorði þínu, á meðan máttu lifa í skugganum.
Þegar ég neyðist til, af því samfélagið neitar að gleyma, fellst ég á það að þú hafir verið saklaus dæmdur og sýkna þig. Ég bið þig að fyrirgefa.
En þegar þú dirfist að biðja mig um bætur fyrir brot mín segi ég:
„Af hálfu íslenska ríkisins er öllum ávirðingum gagnvart lögreglu og dómstólum, svo og ásökunum um meinta refsiverða háttsemi, lögreglu, ákæruvalds og dómstóla hafnað enda ósannaðar með öllu“.
Með vinsemd og virðingu,
Íslenska réttarríkið.