Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, býður sig fram til formanns SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
SVÞ eru hagsmunasamtök fyrirtækja sem starfa í verslun og þjónustu á Íslandi. Margrét Sanders sem verið hefur formaður SVÞ síðan 2014 hyggst ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður samtakanna.
Í tilkynningunni er haft eftir Jóni Ólafi að hann hafi undanfarin ár starfað á vettvangi stjórnar SVÞ að málefnum sem snúa að hagsmunum verslunar og þjónustu.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/jon-olafur-bur-sig-fram-til-formanns-sv